
Næstu námskeið hefjast vor 2026
Slow flow
Þriðjudaga klukkan 19.10-20.10 í Lífsgæðasetrinu St. Jó.
22. febrúar – 22. mars (4xskipti)
Mjúkt og nærandi jóganámskeið þar sem við sameinum mjúkt hatha jóga og jóga nidra – dásamlega blöndu af mjúkri hreyfingu, öndun og djúpri slökun.
Í tímunum vinnum við með mýkt og mildi í öllum hreyfingum. Við örvum bandvefi, losum um spennu, liðkum líkamann og aukum blóðflæði – á nærgætinn og mildann hátt. Við endum svo hvern tíma á jóga nidra, hugleiðslu í djúpslökun sem hefur afar endurnærandi áhrif. Þessi öfluga hvíldaraðferð getur róað taugakerfið, bætt ónæmiskerfið, dregið úr streitu og bætt svefngæði.
Er ekki komin tími til að hlúa að þér?
Verð 21.900

Power flow
Sunnudaga klukkan 11.00-12.00 í Lífsgæðasetrinu St. Jó.
4. – 18. maí (3x skipti)
Kraftmeira jóga þar sem þú svitnar, styrkist og mýkist.
Við byggjum upp úthald, losum spennu og tengjumst líkamanum af krafti en nærgætni. Við endum svo hvern tíma á jóga nidra, hugleiðslu í djúpslökun sem hefur afar endurnærandi áhrif. Flæði sem byggir upp styrk, mótar líkama og róar huga.
Verð: 18.900
