
Aðalheiður Mjöll
Aðalheiður Mjöll er náms- og starfsráðgjafi, kynjafræðingur og jóga- og núvitundarkennari. Auk þess hefur hún lokið MA diplómu í jákvæðri sálfræði, lokið CPD Leading Character Education in Schools frá Jubilee Centre, University of Birmingham og lokið sérhæfðri kennsluþjálfun til að kenna The Present sem er breskt námsefni í núvitund og velfarnaði ætlað börnum. Aðalheiður hefur áratuga reynslu af að starfa með fólki í ráðgjöf, forvarnar- og fræðslustörfum, kennslu í hópavinnu af ýmsu tagi s.s. samskiptavinnu, kvíða, streitustjórnun og hópráðgjöf. Auk þess hefur hún verið með ýmis námskeið sem snúa að sjálfstyrkingu og valdeflingu.
