Jákvæð ráðgjöf – Heildræn nálgun fyrir lífs- og starfsþróun
Jákvæð ráðgjöf miðar að því skoða einstaklinginn með það fyrir augum að finna hvað hann er að gera rétt, hvað reynist honum vel og hvað hann gæti gert enn betur. Við skoðum að þrátt fyrir erfiðleika getur einstaklingur haft tilgang með lífinu og lifað því með reisn. Í stað þess að einblína á erfiðleika, skoðum við hvernig ráðþeginn getur byggt upp sjálfstraust, vellíðan og trú á eigin getu. Eirð bíður upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf með áherslu á rými fyrir ró og sjálfsumhyggju.
Um er að ræða tvær leiðir í ráðgjöf:

Jákvæð ráðgjöf/einstaklingsviðtal
Við veitum þér persónulega ráðgjöf sem byggir á þínum þörfum og markmiðum. Hvort sem þú ert að íhuga nám, starfsferil eða aðrar lífstílsbreytingar þá hjálpum við þér að átta þig á valkostum þínum, nýta styrkleika þína og finna leiðir til að ná því sem þú vilt á árangursríkan og skipulagðan hátt.
Í viðtalinu getur þú fengið meðal annars aðstoð við:
- Að koma til baka inn á vinnumarkað eftir hlé/veikindi
- Að þróa markvissa starfsáætlun og setja raunhæf, mælanleg markmið
- Að gera starfið sem þú hefur að starfinu sem þig langar í
- Að skoða möguleika á starfsþróun og breytingum á ferli
- Að taka ákvarðanir um frekari menntun, starfsval eða starfsmarkmið
- Að takast á við streitu, óvissu eða vangaveltur varðandi framtíðina

Eirðaraðferðin
Eirðaraðferðin er þriggja skrefa lífs- og starfsleiðarferli sem sameinar náms- og starfsþróun, sjálfsumhyggju og farsæld.
Eirðaraðferðin er byggð upp á þremur 60 mín viðtölum;
Skref 1
Skoðum ræturnar og gildin og einblínum á styrkleikana og færnina sem þú býrð yfir núna. Notumst við mælaborð velsældar, sjálfsumhyggju og markmiða.
Skref 2
Skoðum styrkleika- og áhugasvið: Við gerum styrkleikagreiningu með sannreyndum aðferðum sem og áhugasviðs- og starfskannanir eins og t.d. Í leit að starfi, starfshyggjuviðtal Savickas, áhugasvið Hollands, áhugakönnun Strong, Kans og fl..
Skref 3
Kortleggjum þína starfsmótun sem getur stuðlað að aukinni frumkvæðis- og ábyrgðartilfinningu og starfsánægju. Hæfni til að taka ábyrgð á eigin starfsþróun. Áætlun um þína framtíðarsýn er mótuð og næstu skref ígrunduð.
Þjónustan er sérsniðin fyrir:
• Einstaklinga sem eru að koma aftur inn á vinnumarkað eftir hlé/veikindi
• Ungt fólk í ákvörðunarferli sem hefur ekki enn fundið sína stefnu faglega.
• Einstaklinga í starfsbreytingum og þau sem vilja finna nýjan tilgang eða stefnu á vinnumarkaði og sjá nýja möguleika.
• Einstaklinga sem vilja þróa jákvæða sjálfsmynd og þurfa byggja upp sjálfstraust áður en þeir taka næstu skref.
• Einstaklinga með óhefðbundinn taugaþroska (t.d. einhverfurófið) þar sem áhersla er lögð á að finna lausnir sem mæta þínum styrkleikum og þörfum á persónulegan hátt.
Einstaklingsráðgjöf: Verð pr. tíma 21.500 krónur
Eirðaraðferðin: Þrjú viðtöl verð samtals: 59.500 krónur
