Við bjóðum upp á gleðinámskeið fyrir börn á aldrinum 8-12 ára sem er hannað til að styrkja félagslega- og tilfinningalega hæfni.
Námskeiðið er byggt á fræðum jákvæðrar sálfræði, Perma-líkaninu og Penn Resilience Program (PRP) félags- og tilfinningafærninámi sem er byggt á víðamiklum rannsóknum og er sannreynt með aðferðarfræði eins og „ABCDE-módelinu“ (Activating event, Beliefs, Consequences, Disputation, Energization) og aðferðum til sjálfstjórnar og slökunar.
Námskeiðið miðar að því að efla jákvæða hugsun, félagsfærni og tilfinningastjórn með því að kenna börnum aðferðir hvernig þau geta breytt neikvæðum hugsunum og hegðunarmynstrum í jákvæðar lausnir.

Notaðar eru fjölbreyttar kennsluaðferðir, þar á meðal verkefnamiðað nám þar sem nemendur vinna saman í hópum við að leysa verkefni sem krefjast samskiptafærni og lausnaleitar. Leikir, sköpun og hlutverkaleikir er mikilvægur þáttur í náminu þar sem nemendur æfa sig í að bregðast við erfiðum félagslegum aðstæðum á uppbyggilegan hátt með hlutverkaleikjum.
Námsefni
• Gróskuhugarfar og festuhugarfar
• Jákvæðar og neikvæðar hugsanir og jákvætt orðaval
• Að leysa ágreining og að setja mörk
• Tilfinningar – tilfinningahugrekki og tilfinningagreind – skilja, nýta og læra um sínar tilfinningar.
• Styrkleika og styrkleikakort
• Þakklæti, góðvild og samkennd
• Núvitund og hugleiðsla
• Jákvæð inngrip
• Sköpun & gleði
Næsta námskeið verður vor 2026
