Retreat

Gróskuferð – sköpun, núvitund og vellíðan
Mallorca sumarið 2026
Gróskuferð – endurnæring og verkfæri til að styðja við farsæld barna og hlúa að eigin líðan
Þetta er námskeið sem er sérsniðið fyrir fagfólk sem vinnur með börnum og ungmennum eða öðrum sem vilja dýpka þekkingu sína á mannkostamenntun, jákvæðri sálfræði, núvitund, sköpun og sjálfsumhyggju.
Með því að hlúa að eigin líðan byggjum við upp styrk, þrautseigju og sjálfsöryggi til þess að geta stutt aðra til vaxtar og vellíðunar.
Hvað bíður þín?
• Núvitund og innri ró: Leiðsögn í núvitund sem hjálpar til við að draga úr sjálfsgagnrýni og stuðla að meiri samkennd með sjálfum sér og öðrum.
• Aðferðir jákvæðrar sálfræði: Vísindalega studdar leiðir til að efla gleði, þakklæti og seiglu – bæði í eigin lífi og í starfi með börnum og ungmennum.
•Vinnustofur í mannkostamenntun: Hagnýt nálgun til að innleiða mannkostamenntun í daglegt starf, með áherslu á farsæld barna og hvernig styrkleikar og gildi geta verið leiðarljós í lífi þeirra.
Fyrir hverja ?
• Kennara, námsráðgjafa, félagsráðgjafa og annað fagfólk sem vinnur að farsæld barna og ungmenna.
• Þau sem vilja dýpka þekkingu sína á mannkostamenntun og jákvæðri sálfræði.
• Öll sem vilja hlúa að eigin líðan, byggja upp styrk, þrautseigju og sjálfsöryggi til þess að geta stutt aðra til vaxtar og vellíðunar.
• Öll sem vilja sameina persónulega og faglega þróun í fallegu og styðjandi umhverfi.
Af hverju að koma?
Þetta námskeið er einstakt tækifæri til að sameina sjálfsrækt og faglega þróun. Gefðu þér tíma til að hægja á, tengjast sköpunargleði þinni og læra hagnýtar aðferðir til að styðja við farsæld barna og ungmenna.
Á námskeiðinu munum við skoða:
• Blómstrun og hamingju
• Gróskuhugarfar
• Tilfinningar og tilgang
• Þakklæti, góðvild og samkennd
• Styrkleika og styrkleikakort
• Ástríðu, áhuga og flæði
• Jákvæð inngrip
• Núvitund og hugleiðslu
Frekari upplýsingar koma fljótlega
